Son Heung-min, framherji Tottenham, spjallaði við Sky Sports eftir 5-0 sigur gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Son skoraði glæsilegt mark í leiknum sem má sjá hérna.
„Þegar ég fékk boltann þá reyndi ég að senda hann á Dele, en ég fann hann ekki svo ég hélt bara áfram. Ég er mjög ánægður að skora þetta mark."
„Þetta var stórkostlegt í dag. Við sköpuðum færi og nýttum þau vel. Við áttum stigin þrjú skilið. Ótrúleg frammistaða."
Á vef BBC kemur fram að Jose Mourinho, stjóri Tottenham, hafi kallað inn í viðtali að það ætti að gefa Son verðlaunin sem veitt eru manni leiksins.
Son var valinn maður leiksins hjá Sky Sports, en einkunnagjöfina má sjá hérna.
Athugasemdir