Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   fim 07. desember 2023 10:13
Elvar Geir Magnússon
Þorir ekki að veðja á móti því að Villa nái Meistaradeildarsæti
Unai Emery, stjóri Aston Villa.
Unai Emery, stjóri Aston Villa.
Mynd: EPA
Pat Nevin fyrrum landsliðsmaður Skotlands og sérfræðingur breska ríkisútvarpsins segist ekki þora að veðja á móti því að Aston Villa nái að enda í topp fjórum og krækja þar með í Meistaradeildarsæti.

Villa vann 1-0 sigur gegn Manchester City í gær og var hreinlega miklu betra liðið í leiknum.

„Unai Emery er að gera hreint stórkoslega hluti hjá Aston Villa. Ég hafði algjörlega rangt fyrir mér eftir að ég sá Newcastle pakka þeim saman snemma á tímabilinu,“ segir Nevin.

Aston Villa er sem stendur í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Emery hefur fengið sitt lið til að spila saman eins og ein heild. Trúin og hugarfarið frá hverjum einasta leikmanni. Það var ekki nokkur hræðsla á neinum tímapunkti gegn Man City, einu besta liði sem ég hef séð í mörg ár."

„Emery hefur sett saman sérstaka liðsheild. Ég þori ekki að veðja gegn því að þeir endi í topp fjórum á þessu tímabili. Margir halda að þetta sé bara tímabundið en ég held að þeir séu með það sem þarf."

Villa var í fjórtánda sæti þegar Emery tók við Villa, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Hann stýrði þeim í Evrópusæti í lok síðasta tímabils og liðið heldur áfram að taka frábærum framförum.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 0 0 0 0 0 0 0 0
2 Aston Villa 0 0 0 0 0 0 0 0
3 Bournemouth 0 0 0 0 0 0 0 0
4 Brentford 0 0 0 0 0 0 0 0
5 Brighton 0 0 0 0 0 0 0 0
6 Chelsea 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Crystal Palace 0 0 0 0 0 0 0 0
8 Everton 0 0 0 0 0 0 0 0
9 Fulham 0 0 0 0 0 0 0 0
10 Ipswich Town 0 0 0 0 0 0 0 0
11 Leicester 0 0 0 0 0 0 0 0
12 Liverpool 0 0 0 0 0 0 0 0
13 Man City 0 0 0 0 0 0 0 0
14 Man Utd 0 0 0 0 0 0 0 0
15 Newcastle 0 0 0 0 0 0 0 0
16 Nott. Forest 0 0 0 0 0 0 0 0
17 Southampton 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Tottenham 0 0 0 0 0 0 0 0
18 Luton 38 6 8 24 52 85 -33 26
19 Burnley 38 5 9 24 41 78 -37 24
19 West Ham 0 0 0 0 0 0 0 0
20 Sheffield Utd 38 3 7 28 35 104 -69 16
20 Wolves 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner