Duncan Ferguson, aðstoðarstjóri Everton, lét leikmenn liðsins heyra það inni í klefa eftir 1-0 tapið gegn Liverpool í enska bikarnum á sunnudaginn.
Liverpool stillti upp varaliði í leiknum en náði samt að vinna nágranna sína.
Ferguson ku hafa haldið 25 ræðu inni í klefa eftir leik þar sem hann jós úr skálum reiði sinnar en The Athletic segir frá þessu í dag.
Carlo Ancelotti, stjóri Everton, er ekki vanur því að ræða við leikmenn inni í klefa eftir leik en hann gerði undantekningu á eftir leikinn á sunnudag og lýsti yfir óánægju með frammistöðuna.

Reiðin var mikil hjá Everton eftir tapið en myndband hefur birst af netinu þar sem varnarmennirnir Seamus Coleman og Mason Holgate sáust rífast við stuðningsmenn Liverpool í leikslok.
Athugasemdir