Fotbolti.net
08.01.22 - 22:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kjarnafæðimótið: Þórsarar unnu í sex marka leik

Páll Viðar Gíslason er þjálfari Þór2

Páll Viðar Gíslason er þjálfari Þór2

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Völsungur 2-4 Þór2
0-1 Aron Ingi Magnússon
1-1 Einar Örn Sigurðsson
1-2 Ingimar Arnar Kristjánsson
2-2 Jakob Héðinn Róbertsson
2-3 Aron Ingi Magnússon
2-4 Tómas Ernir Guðmundsson
Völsungur og Þór2 áttust við í Kjarnafæði mótinu í kvöld.

Þetta var fyrsti leikur Völsungs á mótinu í ár en Þór2 tapaði gegn KA 4-1 í sínum fyrsta leik.

Þór2 komst yfir gegn Völsungi með marki frá Aron Ingi Magnússon en Einar Örn Sigurðsson jafnaði metin fyrir Völsung. Aðeins tveimur mínútum síðar var Þór komið aftur í forystu og þannig var staðan í hálfleik.

Völsungur jafnaði aftur eftir rúmlega klukkutíma leik en Aron Ingi skoraði síðan sitt annað mark og þriðja mark Þórs áður en Tómas Ernir Guðmundsson kláraði leikinn í uppbótartíma 4-2 lokatölur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.