Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 08. janúar 2023 12:20
Aksentije Milisic
Arsenal og Man Utd spyrjast fyrir um Tammy Abraham
Mynd: EPA

Tammy Abraham, framherji AS Roma á Ítalíu, gæti komið aftur í enska boltann en Arsenal og Manchester United eru sögð hafa spurst fyrir um leikmanninn samkvæmt heimildum frá La Repubblica.


Liðin hafa áhuga á að fá hann næsta sumar en framtíð kappans hjá Roma er í óvissu. Hann var frábær á síðustu leiktíð en hefur átt erfitt uppdráttar á þessari.

Verið er að tala um að United fái hollenska framherjann Wout Weghorst en það yrði þá einungis á láni út tímabilið.

United og Arsenal eru að fylgjast með gangi mála en Abraham á að baki 58 leiki fyrir Chelsea og þá hefur hann einnig spilað Bristol City, Aston Villa og Swansea.

Þá á hann að baki ellefu leiki fyrir landslið Englands og hefur hann skorað í þeim leikjum þrjú mörk.

Talið er að Abraham komi inn í byrjunarlið Roma sem mætir AC Milan í kvöld en hann sat á bekknum í síðasta leik liðsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner