sun 08. janúar 2023 20:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Grikkland: Viðar Örn skoraði úr 'Panenka' víti - Hörður tapaði í toppslag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Atromitos ásamt Samúel Kára Friðjónssyni þegar liðið tók á móti Ionikos í grísku deildinni í dag.


Viðar lét til sín taka strax í upphafi þegar hann fékk vítaspyrnu sem varð til þess að varnarmaður Ionikos var rekinn af velli.

Viðar steig sjálfur á punktinn og skoraði með því að vippa beint á markið, svokölluð Panenka spyrna.

Annað mark Atromitos kom eftir tæplega klukkutíma leik og þar við sat. 2-0 sigur Atromtios staðreynd. Samúel og Viðar voru báðir teknir af velli þegar skammt var til leiksloka.

Hörður BJörgvin Magnússon var í byrjunarliði Panathinakos sem heimsóktti AEK í toppslag. AEK fór með 1-0 sigur af hólmi og minnkaði forskot Panathinakos á toppi deildarinnar í fjögur stig.

Ögmundur Kristinsson var ekki í leikmannahópi Olympiakos í fjórða leiknum í röð en liðið vann Volos 4-0.

Olympiakos er í 4. sæti sjö stigum á eftir Panathinakos. Atromitos er í sjöunda sæti með 22 stig eftir 17 leiki.


Athugasemdir
banner
banner
banner