Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 08. febrúar 2021 15:30
Magnús Már Einarsson
Redknapp hjálpar Woodgate hjá Bournemouth
Harry Redknapp.
Harry Redknapp.
Mynd: Getty Images
Harry Redknapp mun hjálpa Jonathan Woodgate við stjórnvölinn hjá Bournemouth næstu dagana.

Woodgate er tímabundið stjóri hjá Bournemouth eftir að Jason Tindall var rekinn í síðustu viku.

Hinn 73 ára gamli Redknapp stýrði Bournemouth frá 1983 til 1992 en hann mun hjálpa Woodgate hjá félaginu næstu dagana.

„Jonathan Woodgate spilaði undir minni stjórn hjá Spurs og hann er frábær strákur," sagði Redknapp. „Hann bað mig að koma í nokkra daga og horfa á þá æfa."

Bournemouth, sem er í 6. sæti í Championship deildinni, er í stjóraleit og stefnir á að ráða stjóra til frambúðar á næstu dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner