Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 08. febrúar 2021 22:56
Brynjar Ingi Erluson
Suarez bætti met Ronaldo - 16 mörk í 17 leikjum með Atlético
Úrúgvæski framherjinn Luis Suarez skoraði tvö mörk fyrir Atlético Madríd í 2-2 jafnteflinu gegn Celta Vigo í kvöld en hann er kominn með 16 mörk í 17 leikjum með liðinu.

Suarez gekk til liðs við Atlético frá Barcelona fyrir leiktíðina en hann hefur heldur betur blómstrað í Madríd.

Cristiano Ronaldo skoraði 15 mörk í fyrstu 17 leikjum sínum með Real Madrid er hann kom til liðsins árið 2009 en Suarez bætti það met í kvöld.

Suarez og félagar hans í Atlético eru á toppnum í spænsku deildinni með 51 stig, átta stigum á undan Barcelona og þá á liðið einn leik til góða á Börsunga.


Athugasemdir
banner