Þrír leiða í baráttunni um gullskó Bestu deildarinnar

Aron Sigurðarson hefur komið með beinum hætti að 12 mörkum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson hefur komið með beinum hætti að 12 mörkum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lið Bestu deildarinnar hafa öll leikið 10-11 leiki og það eru þrír jafnir á toppnum þegar kemur að lista yfir markahæstu leikmenn deildarinnar; hver þeirra hefur skorað níu mörk.

9 mörk - Elías Már Ómarsson hefur komið frábærlega inn í Víkingsliðið og er með tvær stoðsendingar auk þessara níu marka.

9 mörk - Aron Sigurðarson fyrirliði KR hefur verið einn besti leikmaður tímabilsins. Hann er að auki með þrjár stoðsendingar.

9 mörk - Kristófer Ingi Kristinsson hefur verið mjög stöðugur í sínum leik á meðan spilamennska Breiðabliks hefur verið mjög kaflaskipt. Er með tvær stoðsendingar.

8 mörk - Óskar Borgþórsson er á hæla þremenningana. Er með átta mörk og fjórar stoðsendingar fyrir Víking og er því hæstur þegar kemur að mörkum + stoðsendingum ásamt Aroni.

6 mörk - Emil Atlason í Stjörnunni.

6 mörk - Markús Páll Ellertsson í ÍA.
Með fimm mörk:
Andri Rúnar Bjarnason - Stjarnan
Luke Rae - KR
Stefan Ljubicic - Keflavík
Valdimar Þór Ingimundarson - Víkingur
Atli Jónasson - Fram
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur
Tryggvi Hrafn Haraldsson - Valur
Með fjögur mörk:
Eiður Gauti Sæbjörnsson - KR
Róbert Elís Hlynsson - ÍBV
Tómas Orri Róbertsson - FH
Viktor Jónsson - ÍA
Amin Cosic - KR
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 14 | +39 | 40 |
| 2 | KR | 14 | +14 | 29 |
| 3 | Fram | 13 | +7 | 27 |
| 4 | Breiðablik | 13 | +7 | 22 |
| 5 | Valur | 14 | -3 | 19 |
| 6 | Keflavík | 13 | -6 | 16 |
| 7 | Stjarnan | 14 | -3 | 15 |
| 8 | ÍBV | 13 | -4 | 15 |
| 9 | ÍA | 13 | -8 | 15 |
| 10 | KA | 13 | -9 | 10 |
| 11 | FH | 13 | -13 | 8 |
| 12 | Þór | 13 | -21 | 8 |



