Fotbolti.net
18.06.26 - 13:48
Kári Snorrason

Fékk gult spjald eftir rúmar 20 sekúndur

Kristján Atli fékk að líta gula spjaldið eftir rúmar 20 sekúndur.

Kristján Atli fékk að líta gula spjaldið eftir rúmar 20 sekúndur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
Kristján Atli Marteinsson, leikmaður ÍR, var ekki lengi að komast í bókina hjá Pétri Guðmundssyni dómara í leik ÍR gegn Gróttu í gær.

Kristján stöðvaði skyndisókn Gróttu og gerðist brotlegur heilum 23 sekúndum eftir upphafsflaut leiksins. Spjaldið kom þó ekki að sök því Kristján lék allan leikinn í sterkum 2-1 sigri ÍR-inga á heitu liði Gróttu.
Lestu um leikinn: ÍR 2 - 1 Grótta
Hugsanlegt er að um Íslandsmet sé að ræða ef einungis er litið til gulra spjalda en árið 2005 fékk Þórir Hannesson að líta rauða spjaldið eftir aðeins 23 sekúndur.

Þórir, sem var þá leikmaður Fjölnis, var rekinn af velli í leik gegn KS í 1. deildinni og var það enginn annar en Kristinn Jakobsson sem lyfti rauða spjaldinu. Þórir braut á sóknarmanni sem var að sleppa í gegn.

„Ég brosti nú ekkert voðalega mikið af þessu í gær, þetta verður fyndið eftir tímabilið. Maður er búinn að fá fullt af skotum og gælunöfn á borð við '20 sek maðurinn' og þeir vilja meina að ég sé búinn að toppa Vinnie Jones sem fékk einhvern tímann gult spjald eftir 5 sekúndur,“ sagði Þórir í samtali við Fótbolta.net árið 2005.


Þórir Hannesson.

Þórir Hannesson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.