Fotbolti.net
18.06.26 - 18:31
Brynjar Ingi Erluson

Faðir Messi glímir við heilsufarsvanda og er undir eftirliti lækna

Faðir Messi glímir við heilsufarsvanda og er undir eftirliti lækna
Canon

Mynd: EPA

Fjölskylda argentínska landsliðsmannsins Lionel Messi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem greint er frá því að Jorge Messi, faðir leikmannsins, glími við heilsufarsvanda en sé á batavegi. Fjölskyldan lýsir jafnframt yfir áhyggjum af fréttaflutningi málsins og skorti á nærgætni.
Messi var tilfinningaríkur þegar hann skoraði gegn Alsír í fyrstu umferð riðlakeppninnar á HM.

Hann skoraði þrennu í leiknum og þegar honum var skipt af velli táraðist Lionel Scaloni, þjálfari Argentínu. Messi sagði síðan í viðtali eftir leik að vikan hefði verið honum erfið og tilfinningarík.

Í kjölfarið fóru sögur á kreik um að Jorge, faðir hans, hefði glímt við alvarleg veikindi í marga mánuði. Fjölskyldan hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún vísar sögusögnum og vangaveltum á bug, greinir frá stöðu mála og biður um að friðhelgi Jorge og fjölskyldunnar verði virt.

„Messi-fjölskyldan vill greina frá því að Jorge Messi glímir við heilsufarsvanda. Hann er undir eftirliti lækna, er í bataferli og hefur sýnt jákvæða þróun miðað við ástand sitt.

„Í ljósi frétta, orðróma og vangaveltna sem hafa farið á kreik síðustu klukkustundir vill fjölskyldan lýsa yfir miklum áhyggjum af þeim skorti á nærgætni, virðingu og tillitssemi sem sumir hafa sýnt gagnvart máli sem er alfarið einkamál fjölskyldunnar.

„Fjölskyldan vill jafnframt taka fram að aðeins nánasta fjölskylda Jorge býr yfir réttum og nákvæmum upplýsingum um ástand hans. Því ber ekki að líta á neinar útgáfur, yfirlýsingar eða upplýsingar sem koma ekki beint frá fjölskyldunni eða opinberum boðleiðum hennar sem gildar eða sannar.

„Á stundum sem þessum biðjum við um ábyrgð, varfærni og mannúð. Heilsa einstaklings og hugarró ástvina hans á ekki að vera tilefni vangaveltna eða óábyrgar fjölmiðlaumfjöllunar.

„Við kunnum innilega að meta þann hlýhug, virðingu og umhyggju sem okkur hefur verið sýnd og biðjum um að friðhelgi, trúnaður og persónulegt rými Jorge, sem og allrar fjölskyldunnar, verði virt á meðan þetta ferli stendur yfir.

„Ef ástæða verður til að veita frekari upplýsingar mun fjölskyldan gera það í gegnum viðeigandi boðleiðir,“
segir í yfirlýsingunni.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Lionel og Jorge Messi

Lionel og Jorge Messi

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.