Leipzig hafnaði tilboði Liverpool - Annað á leiðinni

Yan Diomande gæti farið til Liverpool

Mynd: EPA

Yan Diomande gæti farið til Liverpool

Mynd: EPA
Þýska félagið RB Leipzig hafnaði 87 milljóna punda tilboði Liverpool í Fílabeinsstrendinginn Yan Diomande. Þetta segja Fabrizio Romano og Philipp Hinze.
Hinze, sem starfar hjá Sky í Þýskalandi greindi frá því í kvöld að Liverpool hefði lagt fram tilboð í Diomande sem Leipzig hafnaði samstundis. Fabrizio Romano tók undir fréttir þýska blaðamannsins.
Forráðamenn Leipzig vilja halda þessum öskufljóta vængmanni, sem er með Fílabeinsströndinni á heimsmeistaramótinu um þessar mundir.
Romano heldur því þó fram að Leipzig gæti selt Diomande ef tilboð upp á um 105 milljónir punda berst.
Samkvæmt Hinze er Liverpool þegar farið að undirbúa annað tilboð í Diomande.
Hann segir einnig að það yrði ekkert vandamál að ganga frá kaupum og kjörum við Diomande og umboðsmann hans, ef Leipzig samþykkir tilboð frá enska félaginu.
Paris Saint-Germain er einnig í baráttunni en hefur ekki lagt fram formlegt tilboð.