Baulað á vatnspásurnar - Íslendingar ekki hrifnir

Argentínumenn skella sér í vatnspásu.

Mynd: EPA

Ekvadorar fá sér vatn og fara yfir málin.

Mynd: EPA

Argentínumenn skella sér í vatnspásu.

Mynd: EPA
Vatnspásur eru gerðar í öllum 104 leikjunum á HM sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Pásurnar eru teknar eftir um 22 mínútna leik í hvorum hálfleik.
Hvert hlé stendur yfir í þrjár mínútur en þetta fer greinilega í taugarnar á áhorfendum. Baulað var í leik Englands og Króatíu í gær þegar leikurinn var stöðvaður.
Rúmlega 70% íslenskra áhorfenda telja að vatnspásurnar séu óþolandi en þetta er niðurstaða könnunar sem var á forsíðu Fótbolta.net.

TENGT EFNI
Vatnspásurnar á HM umdeildar

Þjálfararnir hafa nýtt pásurnar sem taktísk leikhlé, eins og þekkist í körfubolta og handbolta. Margir sjónvarpsrétthafar fagna þá þessum pásum en bandaríska sjónvarpsstöðin Fox er meðal stöðva sem hafa notað þær til að koma að auglýsingum.
„Ég er ekki hrifinn af þessum pásum, ekki nema aðstæður séu þess eðlis. Mér finnst óþarfi að hafa þetta í öllum leikjum og þegar aðstæður eru góðar," segir Mauricio Pochettino, þjálfari Bandaríkjanna.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

Ekvadorar fá sér vatn og fara yfir málin.

Mynd: EPA