Fotbolti.net
18.06.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vill fara frá Tottenham

Vuskovic í leiknum gegn Englandi

Vuskovic í leiknum gegn Englandi

Canon

Mynd: EPA

Luka Vuskovic, varnarmaður Tottenham, er eftirsóttur en Brighton hefur mikinn áhuga á honum.

Vuskovic var á láni hjá HSV í þýsku deildinni á síðustu leiktíð en enska félagið vill lána hann aftur.

Ef hann yrði áfram er samkeppnin orðin mikil þar sem félagið hefur nælt í Marcos Senesi og þá er félagið á eftir Jan Paul van Hecke, varnarmanni Brighton.
TalkSPORT greinir frá því að Vuskovic vonist til að yfirgefa Lundúnaliðið í sumar. Vuskovic er 19 ára Króati en hann er í landsliðshópnum á HM.

Hann var í byrjunarliðinu þegar liðið tapaði 4-2 gegn Englandi í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.