Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mið 08. apríl 2020 12:30
Elvar Geir Magnússon
Ronaldo aftur til Real Madrid?
Ítalskir fjölmiðlar fjalla mikið um að Juventus gæti neyðst til að selja Cristiano Ronaldo vegna fjárhagsvandamála í kjölfar kórónaveirunnar.

Corriere dello Sport segir að Juventus sé tilbúið að selja Ronaldo aftur til Real Madrid fyrir aðeins 50 milljónir punda.

Portúgalinn er launahæsti leikmaður ítölsku A-deildarinnar.

Ronaldo kom til Juventus frá Real Madrid 2018 fyrir 100 milljónir punda en hann skoraði 450 mörk í 438 leikjum fyrir Madrídarliðið.

Ítalskir fjölmiðlar hafa einnig verið með vangaveltur um að Manchester United og PSG gætu reynt að fá Ronaldo.
Athugasemdir
banner