Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. apríl 2021 17:00
Elvar Geir Magnússon
Sex miðverðir sagðir á blaði hjá Solskjær
Ole Gunnar Solskjær.
Ole Gunnar Solskjær.
Mynd: Getty Images
Eurosport segir að Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, og John Murtough, yfirmaður fótboltamála, séu með sex miðverði á blaði fyrir sumargluggann.

Solskjær vill bæta við sig miðverði og eru sex leikmenn í þá stöðu sem hann hefur áhuga á að fá.

Fjórir af þeim eru Jules Kounde hjá Sevilla, Pau Torres hjá Villarreal, Raphael Varane hjá Real Madrid og Ibrahima Konate hjá RB Leipzig.

Hin tvö nöfnin hafa ekki verið opinberuð.

Hinn 22 ára Kounde hefur einnig verið orðaður við Chelsea og Real Madrid eftir tvö öflug tímabil í La Liga. Torres hefur einnig verið orðaður við Manchester City.

United hefur lengi horft löngunaraugum til Varane en fyrst núna virðist Real Madrid tilbúið að hlysta á tilboð. Liverpool er líka sagt horfa til Konate.
Athugasemdir
banner
banner
banner