fös 08.apr 2022 13:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá Fótbolta.net - 6. sæti: Stjarnan
Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Stjarnan muni enda í 6. sæti í Bestu deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Stjarnan endar í neðsta sæti efra umspilsins ef spáin rætist.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. Stjarnan 69 stig
7. KA 65 stig
8. Leiknir 47 stig
9. ÍBV 35 stig
10. ÍA 33 stig
11. Keflavík 19 stig
12. Fram 17 stig
Um liðið: Stjarnan var vel undir væntingum í fyrra en endaði þó í sjöunda sæti. Það blekkir aðeins því liðið endaði ellefu stigum frá 6. sætinu og tveimur stigum frá fallsæti. Eftir sjö umferðir var liðið neðst í deildinni með þrjú stig en það tókst að rétta skútuna við og ná í nítján stig í síðustu fimmtán leikjunum. Stjarnan er með mjög marga unga leikmenn í hópnum en einnig með reynslumikla leikmenn sem geta leiðbeint þeim yngri.
Þjálfari - Ágúst Gylfason: Gústi var ráðinn þjálfari Stjörnunnar síðasta haust þegar Þorvaldur Örlygsson tók við sem rekstarstjóri knattspyrnudeildar. Gústi þjálfaði Gróttu síðustu tvö ár en er nú mættur í Garðabæinn. Gústi er mikill stemningsmaður og hann í bland við nýja skólann í Jökli Elísabetarsyni mynda spennandi teymi. Liðið hefur pressað hátt á undirbúningstímabilinu og verður gaman að sjá það halda áfram í sumar.
Styrkleikar: Góð blanda af reynsluboltum og ungum og sprækum strákum. Það eru ekkert alltof miklar hræringar á sterkasta byrjunarliðinu milli ára og þar sem yngri leikmenn eru orðnir árinu eldri þá er erfitt að vera ekki bjartsýnn fyrir spennandi sumri í Garðabæ.
Veikleikar: Breiddin á miðjunni minnkaði talsvert þegar besti leikmaður liðsins síðustu ár sleit krossband í vetur. Stjörnumenn munu sakna Hilmars Árna. Emil hefur ekki beint verið þekktur fyrir að raða inn mörkum í efstu deild en hann virðist vera fyrsti kostur í fremstu stöðuna.
Lykilmenn: Óskar Örn Hauksson og Haraldur Björnsson. Óskar Örn er einn allra besti leikmaður deildarinnar þrátt fyrir að talan 40 nálgist. Hann er alltaf í toppstandi og skilar reglulega inn mörkum og stoðsendingum. Halli er einn besti markvörður deildarinnar og stendur alltaf fyrir sínu.
Hlaðvarpsþátturinn Ungstirnin mælir með: Ísak Andri Sigurgeirsson. Ísak er fæddur árið 2003, hann hefur verið einn besti leikmaður Stjörnunnar á undirbúningstímabilinu. Í fyrra var hann á láni hjá ÍBV og skoraði hann þrjú mörk í tíu leikjum. Það eru nýir tímar í Garðabæ og ef þjálfarar Stjörnunnar sýna Ísaki sama traust í sumar og þeir gerðu á undirbúningstímabilinu þá kæmi okkur ekkert á óvart að Ísak verði einn besti leikmaður Stjörnunnar í sumar. Hann gæti jafnvel orðið einn besti ungi leikmaður Bestu Deildarinnar. Miklir hæfileikar þarna á ferð.
Spurningarnar: Markaskorun í fjarveru Hilmars Árna? Geta Jóhann Árni og Óskar Örn skorað nóg í staðinn? Nær Emil að komast á gott skrið? Er fyrirliðinn Daníel Laxdal klár í slaginn? Er Einar Karl nægilega góður einn sem djúpur miðjumaður?
Völlurinn: Samsungvöllurinn. Gervigras og köld stúka er það sem kemur fyrst upp í hugann. Næst kemur svo upp skemmtileg stemning í stúkunni og góðar veitingar á staðnum. Stjörnumenn munu væntanlega flykkjast á bakvið liðið þar sem fullt af uppöldnum leikmönnum eru í hópnum.
Markvörðurinn segir - Haraldur Björnsson
„Þetta er bara fínt, þetta er betra en í fyrra minnir mig og ef þetta gengur eftir þá erum við í þessum efri hluta þegar deildinni verður skipt upp. Þar vilja öll lið vera."
„Nei, þetta kemur mér ekki á óvart. Það vita flestir hvernig tímabilið í fyrra gekk og þetta kemur ekkert á óvart."
„Hópurinn er mjög flottur, það eru flest allir heilir og þeir sem hafa eitthvað glímt við meiðsli eru að koma til baka og eru nokkuð frískir. Fyrir utan þetta mikla áfall að missa Hilmar Árna út, það er alveg hræðilegt fyrir okkur. Í staðinn verða aðrir að stíga upp"
Komnir
Jóhann Árni Gunnarsson frá Fjölni
Óskar Örn Hauksson frá KR
Sindri Þór Ingimarsson frá Augnabliki
Þorsteinn Aron Antonsson frá Englandi (á láni)
Ísak Andri Sigurgeirsson frá ÍBV (var á láni)
Farnir
Arnar Darri Pétursson
Casper Sloth
Eyjólfur Héðinsson í ÍR
Halldór Orri Björnsson hættur
Heiðar Ægisson í Val
Kári Pétursson í KFG
Magnus Anbo hættur
Oscar Borg í Hauka
Fyrstu fimm leikir Stjörnunnar:
19. apríl Stjarnan - ÍA
24. apríl Leiknir - Stjarnan
2. maí Víkingur - Stjarnan
7. maí Stjarnan - Fram
11. maí Breiðablik - Stjarnan
Hin hliðin:
Adolf Daði Birgisson
Kristófer Konráðsson
Eggert Aron Guðmundsson
Sterkasta byrjunarliðið að mati Fótbolta.net:
Aðrir leikmenn:
Tristan Freyr Ingólfsson - 3
Þorsteinn Antonsson - 5
Sindri Þór Ingimarsson - 6
Hilmar Árni Halldórsson - 10
Þorsteinn Már Ragnarsson - 11
Ólafur Karl Finsen - 17
Guðmundur Baldvin Nökkvason - 18
Sigurbergur Áki Jörundsson - 20
Elís Rafn Björnsson - 21
Björn Berg Bryde - 24
Gunnar Orri Aðalsteinsson - 28
Adolf Daði Birgisson - 29
Henrik Máni Hilmarsson - 31
Örvar Logi Örvarsson - 32
Viktor Reynir Oddgeirsson - 33
Daníel Freyr Kristjánsson - 35
Kristófer Konráðsson - 77
Róbert Frosti Þorkelsson - 80
Oliver Haurits - 99
Spámennirnir: Aksentije Milisic, Brynjar Ingi Erluson, Egill Sigfússon, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafliði Breiðfjörð, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson og Úlfur Blandon