08.04.22 - 17:45
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„Rosalega mikil tækifæri í því að taka markaðsstarfinu alvarlega"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markaðssérfræðingurinn og markaðsstjóri alþjóðlega fyrirtækisins Men and Mice, Elvar Páll Sigurðsson, ræddi við Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolta.net. Elvar lék á sínum tíma með Breiðabliki og Leikni.
Elvar fór yfir samfélagsmiðlana hjá félögunum og hvernig hægt væri að gera betur þar. Umræðan hefst eftir 69 mínútur af þættinum sem hægt er að nálgast hér að neðan.

Í upphafi ræddu þeir Elvar og Tómas um nýtt nafn á deildina og nýtt fyrirkomulag á deildinni. Í kjölfarið var svo rætt um félögin og hvað þau geti gert.
„Hvað geta félögin gert til að fylgja þessu eftir? Það er ekki nóg að vera með faglegt starf í grunninn, það þarf að fygja því eftir. Mér finnst vanta að horfa á félögin sem fyrirtæki og vörumerki. Ég veit að mörg félög hafa verið að ráða inn markaðsstjóra og það er verið að huga að þessu en oft á tíðum, eins og t.d. með samfélagsmiðlana, þá er þetta svolítið í hjáverkum. Það er verið að setja þetta í hendurnar á sjálfboðaliðum sem er ekki sjálfbært til framtíðar," sagði Elvar Páll.
„Það eru rosalega mikil tækifæri í því að taka markaðsstarfinu alvarlega og oft á tíðum finnst mér að það sé horft á þetta sem kostnað og kvöð en fyrir mér er þetta bara hrein fjárfesting. Fjárfesting fyrir félögin og fjárfesting fótboltann innanlands. Við erum að falla aftur úr í þessum málum ef við horfum til Skandinavíu og annarra landa," bætti Elvar Páll við.

King of Marketing, Elli Páll með frábærar pælingar. Liðin þurfa ráða þennan mann inn sem ráðgjafa, þau eru með frábæra vöru í höndunum(fótbolti) sem þarf að auglýsa almennilega! Annars er ég vel peppaður fyrir Bestu deildinni 🚀 https://t.co/LHS4M2rDSS
— Brynjar Benediktsson (@brynjarben) April 8, 2022