Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 08. maí 2022 10:39
Elvar Geir Magnússon
Heimild: Vísir 
Sjáðu Blikamörkin á Skaganum og rauða spjaldið á Bykov
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Meðal leikja í Bestu deildinni í gær var 4-1 útisigur Breiðabliks gegn ÍA en Kópavogsliðið fer af stað á flugi á nýju tímabili og er með fullt hús stiga.

Ísak Snær Þorvaldsson skoraði tvívegis og þeir Kristinn Steindórsson, Dagur Dan Þórhallsson og Anton Logi Lúðvíksson komust einnig á blað.

Markalaust jafntefli varð niðurstaðan í Vesturbænum í leik KR og KA en gestirnir léku manni færri eftir að úkraínski varnarmaðurinn Oleksiy Bykov fékk að líta rauða spjaldið.

Hér að neðan má sjá mörkin frá Akranesi og brottvísun Bykov.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner