Fotbolti.net
19.09.26 - 20:13
Ívan Guðjón Baldursson

Lampard: Tapið gegn Brighton lítur betur út

Lampard: Tapið gegn Brighton lítur betur út
Canon

Mynd: EPA

Frank Lampard stjóri Coventry City var mjög ánægður eftir mikinn baráttusigur gegn Nottingham Forest í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
England: Markvörðurinn lagði upp sigurmarkið í Nottingham
TENGT EFNI

England: Markvörðurinn lagði upp sigurmarkið í Nottingham

Nýliðar Coventry mættu inn í fimmtu umferð tímabilsins stigalausir en þeim tókst að hafa betur í Nottingham, með einu marki gegn engu.

„Þetta eru svo mikilvæg stig fyrir okkur og leikmennirnir eiga þetta skilið. Þetta er frumraun margra í hópnum í úrvalsdeildinni, þeir hafa ekki verið hérna áður og þeim þarf að líða eins og þeir eigi heima hérna. Þeir sýndu mikinn karakter í dag og ég er svo ánægður með tilfinninguna sem fylgir þessum sigri. Það er ekki gaman að tapa, þó að lokatölurnar gegn Brighton líti betur út núna eftir að þeir skelltu Arsenal," sagði Lampard, en Coventry tapaði 0-5 á heimavelli gegn Brighton um síðustu helgi. Brighton vann Englandsmeistara Arsenal svo 3-0 í dag.

„Við höfum margt að læra og það er mikilvægt að við séum samheldnir og berjumst fyrir hverju stigi. Það er auðvelt að kenna öðrum um þegar maður tapar en þessi hópur er mjög sterkur og samheldinn. Þessi sigur er mikilvægur fyrir sjálfstraustið."

Jay Dasilva skoraði eina mark leiksins eftir góða sendingu frá markverðinum Carl Rushworth yfir varnarlínu Forest. Dasilva átti glæsilega fyrstu snertingu og kláraði með snyrtilegri afgreiðslu.

„Þetta minnti mig á Ashley Cole, hann gerði þetta stundum á sínum ferli. Þetta var frábært mark, fyrsta snertingin var stórkostleg og hann kláraði fagmannlega og þvílík tímasetning til að skora. Hann er mjög mikilvægur fyrir okkur."

Coventry á leiki við Newcastle, Tottenham og Fulham eftir landsleikjahléð.

England: Meistararnir teknir í bakaríið í Brighton
TENGT EFNI

England: Meistararnir teknir í bakaríið í Brighton

Lampard: Tapið gegn Brighton lítur betur út
Canon

Mynd: EPA

Lampard: Tapið gegn Brighton lítur betur út
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.