Fotbolti.net
19.09.26 - 17:36
Andri Stefánsson

Óskar Hrafn: Þetta er ömurleg tilfinning

Auglýsing
Óskar Hrafn, þjálfari KR.

Óskar Hrafn, þjálfari KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR tók á móti Víkingi í 2. umferð eftir skiptingu klukkan 14:00 í dag. Leikar enduðu með 2-1 útisigri Víkings sem tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn. Fótbolti.net ræddi við Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 1 - 2 Víkingur R.
Óskar var svekktur eftir tapið gegn Víkingi en var að sama skapi ánægður með frammistöðu sinna manna.

„Þetta er bara ömurleg tilfinning að vera upp á móti liði sem maður hefur minnstan smekk fyrir í fótbolta og sjá þá verða Íslandsmeistara. Það er bara ömurleg tilfinning.“

Óskar taldi leikinn nokkuð jafnan en benti jafnframt á þann styrk sem Víkingur býr yfir.

„Mér fannst þetta frekar jafn leikur. Þeir voru góðir á boltanum og í stöðunum sínum. Þeir eru auðvitað með langdýrasta og besta mannskapinn í deildinni. Þeir eru búnir að fjárfesta gríðarlega í liðinu og það er mjög öflugt.“

Hann segir KR ætla að halda áfram uppbyggingunni og reyna að minnka bilið í Víking.

„Kannski er tíminn ekki alveg kominn hjá okkur til að veita þeim alvöru, alvöru keppni yfir heilt tímabil. Við förum aftur á næsta ári og verðum búnir að minnka bilið.“

Óskar var heilt yfir ánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum.

„Mér fannst hún góð. Mér fannst þeir kannski aðeins verða orkulausir síðustu 15-20 mínúturnar en heilt yfir var ég mjög ánægður með liðið. Þeir voru frábærir og ég er mjög sáttur við frammistöðuna.“

Hann sagði jafnframt að KR hefði þurft að nýta færin sín betur gegn jafn sterku liði.

„Við vitum það að þegar við ætlum að vinna Víking þá verðum við að fara mjög vel með öll tækifæri sem við fáum á síðasta þriðjungi, því þeir gefa ekki mörg færi á sér.“

Að lokum var Óskar spurður út í tímabil KR í heild sinni.

„Við getum bara verið mjög sáttir við stóran hluta tímabilsins. Við áttum erfitt tímabil í fyrra og liðið hefur vaxið mikið. Margir leikmenn hafa tekið risastór skref og þetta er fínn grunnur til að byggja á.“

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér fyrir ofan

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram23+1245
4Breiðablik23+433
5ÍA23-630
6Keflavík23-828
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.