19.09.26 - 22:15
Ívan Guðjón Baldursson
Moyes: Vantar bara mörkin

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: Fiorentina

Mynd: EPA
David Moyes stjóri Everton var ánægður eftir 1-0 sigur gegn nýliðum Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
Moyes: Þurfum að þrauka gegnum næstu 14 eða 15 leiki
Everton er enn ósigrað og situr í fimmta sæti deildarinnar með 9 stig eftir 5 umferðir.
Everton komst nálægt því að ná óvæntu Evrópusæti í fyrra en liðið endaði að lokum í 13. sæti - aðeins fjórum stigum frá Evrópu.
„Við leyfðum okkur að dreyma í fyrra og komumst nálægt Evrópu. Það er afrek út af fyrir sig og fólk sem segir og skrifar að þetta sé ekki neitt afrek er að bulla. Við höfum gert stórkostlega hluti frá því að við tókum við stjórn á þessu félagi í miðri fallbaráttu. Eftir það skiptum við um leikvang og það hefur aldrei verið auðvelt fyrir neitt félag að skipta um heimavöll. Þetta er frábært afrek," sagði Moyes, en Everton var án sigurs í sjö síðustu deildarleikjum síðustu leiktíðar og missti þess vegna af Evrópusæti.
„Ég ætla ekki að gera þessi mistök aftur að segja við fréttamenn að við getum barist um Evrópusæti. Við erum bara einbeittir að því að gera okkar besta. Mér leið vel í fyrra og ég var fullur sjálfstrausts á góðum kafla hjá okkur. Þess vegna lét ég þessi orð falla, við vorum í ótrúlega góðri stöðu."
Beto skoraði 9 mörk í 37 deildarleikjum fyrir Everton á síðustu leiktíð en skipti yfir til Fiorentina í sumar. Thierno Barry er eini hreinræktaði framherjinn í nokkuð þunnum leikmannahópi Everton, og er búinn að skora 2 mörk í 5 leikjum á upphafi tímabils. Hann setti 8 mörk í 38 leikjum í fyrra.
„Það er mjög gott að við séum ósigraðir eftir fimm umferðir, en þetta er það sem ég býst við af strákunum. Ég er vonsvikinn með markaskorunina, við verðum að gera fleiri mörk. Ég er að láta þá vinna mikið á æfingasvæðinu, ég krefst þess að sjá betri fyrirgjafir, betri slútt, betri skot frá vítateigslínunni.
„Eina sem okkur vantar til að vera þokkalegt lið er markaskorunin. Við þurfum að skapa betri færi og nýta þau."
Everton er með 6-3 í markatölu eftir fimm umferðir.