Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. maí 2022 15:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sveindís þýskur meistari - Skoraði og lagði upp í risasigri
Mynd: Mirko Kappes

Sveindís Jane Jónsdóttir er þýskur meistari á sínu fyrsta tímabili með Wolfsburg.


Liðið mætti Jena á útivelli í næst síðustu umferð deildarinnar en liðið var með eins stigs forystu á Bayern Munchen fyrir leikinn.

Sveindís var í byrjunarliðinu en hún hóf leikinn af krafti. Eftir sjö mínútur komst liðið yfir en Sveindís lagði markið upp og skoraði síðan sjálf aðeins tveimur mínútum síðar.

Eftir 25 mínútna leik var staðan orðin 4-0 og fimmta markið leit dagsins ljós áður en flautað var til hálfleiks.

Eftir klukkutíma leik var staðan orðin 7-0. Eftir þessa veislu frá Wolfsburg náði Jena að minnka muninn. Leikmenn Wolfsburg slökuðu ekkert á og bættu þremur mörkum við áður en flautað var til leiksloka. 10-1 lokatölur og titillinn í hús!


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - konur
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern W 19 16 3 0 50 6 +44 51
2 Wolfsburg 19 14 2 3 53 18 +35 44
3 Eintracht Frankfurt W 19 11 2 6 34 22 +12 35
4 Hoffenheim W 19 10 4 5 41 25 +16 34
5 Essen W 19 8 5 6 30 19 +11 29
6 Bayer W 19 7 7 5 28 19 +9 28
7 Werder W 19 6 4 9 27 24 +3 22
8 Freiburg W 19 5 6 8 22 38 -16 21
9 RB Leipzig W 19 5 5 9 21 39 -18 20
10 Koln W 19 5 3 11 23 35 -12 18
11 Nurnberg W 19 3 3 13 14 55 -41 12
12 Duisburg W 19 0 4 15 12 55 -43 4
Athugasemdir
banner
banner