Fotbolti.net
23.09.26 - 12:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Fattaði eftir á að ég miðaði á bekkinn hjá Stjörnunni"

Hlaðið í fagnið.

Hlaðið í fagnið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kjartan Kári Halldórsson, leikmaður FH, fagnað mörkum sínum gegn Stjörnunni með því að „skjóta á" varamannabekkinn hjá Stjörnunni. Hann hefur fagnað mörkum með þessum hætti í nokkur ár, tók það upp eftir Vinicius Jr. sem spilar með Real Madrid.

Fótbolti.net ræddi við Kjartan Kára í dag sem hló þegar hann heyrði hvers vegna hann fréttamaður hringdi.
Kjartan Kári: Þessi ótrúlega þriggja vikna pása
TENGT EFNI

Kjartan Kári: Þessi ótrúlega þriggja vikna pása

„Ég hef tekið þetta fagn frá því að ég var í Gróttu. Ég er mikill Vini Jr. maður og hann fagnar svona. Það er bara að setja smá hita í þetta, er það ekki það sem fólkið vill? Hafa smá skemmtun í þessu? segir Kjartan Kári.

Ertu vanur því að miða á sérstakan stað í fagninu?

„Vanalega tek ég þetta upp í stúku. Ég viðurkenni að þetta var agressíft, en þetta var bara gaman, skoraði á móti Stjörnunni og það er alltaf gaman að skora. Ég fattaði eftir á að ég hafði miðað á bekkinn hjá Stjörnunni, en þetta var bara eitthvað í mómentinu. Þetta var bara stemning."

Þetta var ekkert skemmtilegt gagnvart Stjörnunni eða bekknum?

„Nei, alls ekki. Ég hef ekkert á móti Stjörnunni, þetta var bara í mómentinu."

Einhverjir voru með þær kenningar að þetta gæti tengst atviki fyrir tveimur árum þar sem þú og Samúel Kári Friðjónsson, sem er nú í Val, lentuð aðeins saman.

„Það er smá síðan það var, þá vorum við Sammi aðeins að kýtast, en við skildum bara í góðu eftir leik. Það var ekkert flóknara en það."
Veikur gegn Þór
Þið áttuð ekki ykkar besta dag fyrir norðan gegn Þór í lokaumferð fyrir tvískiptingu. Þjálfarinn ykkar, Jói Kalli, talaði um að veikindi hefðu herjað á hópinn í aðdraganda leiksins.

„Ég fékk einhverja magakveisu um morguninn, það var upp og niður bara. Svo voru menn búnir að vera veikir í vikunni fyrir leikinn, veikindi í hópnum. Það kemur líka einn og einn leikur þar sem maður er 'off'. Þórsarar voru góðir í þessum leik, voru þéttir og náðu að loka á okkur sóknarlega. Við áttum ekki góðan dag fyrir norðan."

„Við vorum algjörlega innstilltir á að svara fyrir það í næsta leik á eftir. Jói talaði við okkur eftir leik og sagði bara að þessi leikur væri búinn og einbeitingin farin strax á næsta leik. Við skildum tapið eftir fyrir norðan og svöruðum fyrir okkur í næsta leik."


Bætt uppspil og margir að skora mörk
FH svaraði tapinu gegn Þór með 3-0 sigri gegn KA og 5-2 sigri gegn Stjörnunni. FH er ekki tölfræðilega búið að bjarga sér frá falli þegar níu stig eru í pottinum.

„Mér líst vel á þetta, við erum búnir að sýna að við erum helvíti sterkt lið. Við erum búnir að bæta okkur í uppspili og í því að klára sóknir. Það eru 5-6 leikmenn sem hafa skorað 5+ mörk. Ég er spenntur fyrir lokakaflanum, þetta verða erfiðir leikir; fyrst tveir útileikir og svo endum við á heimaleik."

Kominn á rétt ról eftir hæga byrjun
Kjartan hefur nú skorað sjö mörk og lagt upp ellefu í 24 leikjum í Bestu deildinni á tímabilinu og hefur komið að fimm mörkum í síðustu tveimur leikjum. Hann hefur komið með beinum hætti að marki eða mörkum í sjö af síðustu átta leikjum. Ertu nálægt þeim stað sem þú vilt vera á í markaskorun?

„Algjörlega. Ég vissi þegar að Bjössi (Björn Daníel Sverrisson) og Siggi (Sigurður Bjartur Hallsson) fóru úr liðinu að þar færu mjög mörg mörk úr liðinu. Ég er búinn að vera spila aðra stöðu núna, ekki á kantinum. Ég er búinn að stíga upp í síðustu leikjum, vildi vera svona yfir allt tímabilið en það gekk ekki alveg í byrjun. Nú er ég kominn á rétt ról."

„Ég fíla þetta hlutverk, er í „free roam" stöðu í tíunni og finnst það fínt. Ég spilaði svipað hlutverk í Gróttu og veit því sirka hvað ég er að gera. Við erum búnir að læra vel inn á alla, hvar menn eru á vellinum og hvert uppleggið er. Það er gott að geta leyst fleiri stöður en bara kantinn."


Saknar stundum að vera ekki með turn inn á teignum
Bjössi og Siggi voru duglegir að skora eftir fyrirgjafir frá þér. Saknaru þess stundum að vera ekki með turn eins og þá inn á teignum til að miða á í opnum leik?

„Í síðasta leik vorum við með Flóka (Kristján Flóka Finnbogason) frammi og það var þægilegt að vinna með honum. Hann er góður í því að halda í boltann. Við getum spilað þannig og líka verið með Ella (Erling Agnarsson) sem er mjög fljótur. Þá er mjög mikill hraði fram á við. En vissulega saknar maður þess stundum að geta ekki sett hann á pönnuna á einhverjum turni í teignum," segir Kjartan að lokum.

FH spilar við Val og ÍBV á útivellli eftir landsleikjahléið og tekur svo á móti Þór á heimavelli í lokaumferðinni eftir mánuð.
Fattaði eftir á að hann hafði miðað á bekkinn hjá Stjörnunni.

Fattaði eftir á að hann hafði miðað á bekkinn hjá Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Skoraði tvö mörk í leiknum.

Skoraði tvö mörk í leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Tekur þetta fagn reglulega.

Tekur þetta fagn reglulega.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vini Jr.

Vini Jr.

Canon

Mynd: EPA

Sigrinum gegn Stjörnunni fagnað.

Sigrinum gegn Stjörnunni fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Valur24-331
2Stjarnan24-931
3FH24-627
4KA24-1323
5Þór24-3421
6ÍBV24-1519
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.