Fotbolti.net
23.09.26 - 19:59
Brynjar Ingi Erluson

Markvörðurinn neitaði að verja víti og dómarinn í bann

Gustavo stóð við stöngina í vítinu

Gustavo stóð við stöngina í vítinu

Canon

Mynd: Af netinu

Fótboltaskandall virðist vera orðinn að vikulegum viðburði í Bólivíu, en enn eitt stórfurðulega atvikið átti sér stað þar á dögunum.
Átti að fá á sig þrjú mörk eða borga skuld - Fjölskyldunni hótað lífláti
TENGT EFNI

Átti að fá á sig þrjú mörk eða borga skuld - Fjölskyldunni hótað lífláti

Wilstermann Cooperativas og Atlético Independiente áttust við í bikarkeppninni og var staðan 2-2 þegar komið var fram á fjórðu mínútu í uppbótartíma.

Þá dæmdi Carlos Arteaga, dómari leiksins, afar umdeilda vítaspyrnu á Cooperativas. Mikil mótmæli brutust út og dróst vítaspyrnan svo lengi að hún var ekki tekin fyrr en 24 mínútum eftir að venjulegum leiktíma lauk.

Argentínski markvörðurinn Gustavo Tesonotte neitaði að taka þátt í því sem hann taldi vera algjöra vitleysu. Hann stóð einfaldlega við stöngina og leyfði Ernesto Adiri, leikmanni Atlético, að skora úr vítinu.

Mikil reiði var eftir leikinn og hefur fótboltasambandið í Bólivíu nú sett dómarann í ótímabundið bann á meðan málið er rannsakað.

Þetta er annar stórfurðulegi skandallinn í bólivískum fótbolta á skömmum tíma. Fyrir nokkrum dögum fékk markvörður viljandi á sig þrjú mörk eftir að fjölskyldu hans hafði verið hótað lífláti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.