Fotbolti.net
23.09.26 - 18:54
Brynjar Ingi Erluson

Goðsögn Man Utd hjólar í Ratcliffe

Eric Cantona er ekki hrifinn af Ratcliffe

Eric Cantona er ekki hrifinn af Ratcliffe

Canon

Mynd: EPA

Fyrrum fótboltamaðurinn Eric Cantona hefur ekki mikið álit á Sir Jim Ratcliffe, einum eigenda Manchester United, og segir að hefði Ratcliffe verið við stjórnvölinn hjá félaginu á sínum tíma hefði hann aldrei gengið í raðir United.
„Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara"
TENGT EFNI

„Glazers og Sir Jim Ratcliffe verða að fara"

Cantona er goðsögn í augum stuðningsmanna Manchester United og vann níu titla á fimm árum sínum hjá félaginu.

Hann ræddi við Pete Boyle, stuðningsmann United, um ummæli sem Ratcliffe lét falla um innflytjendamál á Englandi. Ratcliffe sagði meðal annars að innflytjendur væru að taka yfir landið. Hann baðst síðar afsökunar á orðalagi sínu en hélt því þó fram að yfirvöld þyrftu að grípa til aðgerða enda færi staðan versnandi.

Ummælin fóru illa í Cantona. Ratcliffe hefur sjálfur talað um Cantona sem einn af sínum uppáhaldsleikmönnum, en sú aðdáun virðist ekki vera gagnkvæm.

Cantona var spurður hvort hann hefði gengið til liðs við United á tíunda áratugnum ef Ratcliffe hefði þá verið í eigendahópi félagsins og svarið var afdráttarlaust.

„Nei, auðvitað ekki. Þið vitið hvað mér finnst um allt þetta og þessa pólitík. Ég get ekki skilið hvernig einhver sem er einn af eigendum félagsins getur sagt eitthvað þessu líkt.“

„Fótbolti er gríðarlega vinsæl íþrótt og margir af bestu leikmönnunum hafa komið úr samfélögum sem mótast hafa af ólíkum bylgjum innflytjenda. Það á við í Frakklandi, Englandi og víðar.“

„Margir af bestu leikmönnum í sögu Frakklands koma úr ólíkum áttum. Ég gerði heimildarmynd um þetta, French Football: An Immigrant History. Raymond Kopa var sonur pólskra innflytjenda sem komu til Frakklands og unnu þar hörðum höndum. Svo höfum við Ítalana, eins og Platini, og Spánverjana, eins og mig. Mamma mín kom til Frakklands ásamt spænskum flóttamönnum. Ég get einfaldlega ekki sætt mig við þetta hjá honum,“
sagði Cantona.

Stuðningsmannaklúbbur múslima hjá Manchester United hefur kallað eftir því að Ratcliffe og Glazer-fjölskyldan selji félagið. Þá fór þáttastjórnandinn og sparkspekingurinn Gary Lineker hörðum orðum um Ratcliffe í hlaðvarpsþættinum The Rest Is Football.
Sir Jim Ratcliffe

Sir Jim Ratcliffe

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.