Fotbolti.net
08.06.22 - 12:43
Elvar Geir Magnússon

Getafe boðið að semja við Bale

Bale í landsleik með Wales.

Bale í landsleik með Wales.

Canon

Mynd: EPA

Angel Torres forseti Getafe segir að félaginu hafi verið boðið að semja við velska landsliðsmanninn Gareth Bale.

Bale hjálpaði Wales að tryggja sér sæti á HM í Katar en hann verður án félags þegar samningur hans við Real Madrid rennur út um næstu mánaðamót.
„Það var haft samband við mig og boðið að semja við Gareth Bale. Ég talaði við umboðsmenn hans," sagði Torres.

Bale er til í að vera áfram í Madríd og myndi það því henta vel að semja við Getafe sem hafnaði í 15. sæti í Lal Liga á síðasta tímabili.

Bale er 32 ára og leggur áherslu á að mæta í toppstandi til Katar þar sem HM verður haldið næsta vetur.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.