Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 08. júní 2022 16:00
Elvar Geir Magnússon
Grealish á klárlega að byrja næsta leik
Jack Grealish í leiknum í gær.
Jack Grealish í leiknum í gær.
Mynd: Getty Images
Jack Grealish, leikmaður Manchester City, fær mikið lof frá enskum fjölmiðlamönnum eftir innkomu hans gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni í gær.

Leikur enska liðsins batnaði til mikilla muna eftir að Grealish kom af bekknum á 72. mínútu. Þýskaland var þá yfir í leiknum en Harry Kane jafnaði af vítapunktinum á 88. mínútu og 1-1 urðu lokatölur.

„Grealish breytti leiknum og skyndilega voru varnarmenn Þýskalands á hælunum," skrifar Phil McNulty hjá BBC.

„England náði að finna ferskan kraft seint í leiknum og það var hinum líflega Grealish að þakka, hann kom með mikinn drifkraft á vinstri vænginn. Hann var líklega óheppinn að fá ekki byrjunarliðssæti frekar en Mason Mount sem virkaði þreyttur. Grealish á klárlega að byrja næsta landsleik Englands."

England fær Ítalíu í heimsókn á Molineux völlinn á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner