
Ísland vann flottan 3-1 útisigur gegn Skotlandi á Hampden Park í Glasgow á föstudaginn. Þetta var fyrsti sigur Íslands gegn Skotlandi en fyrri sex viðureignir þessara þjóða höfðu allar endað með skoskum sigrum.
Þá var þetta fyrsti sigurleikur Arnars Gunnlaugssonar síðan hann tók við landsliðinu. Íslenski hópurinn er nú kominn til Belfast þar sem leikið verður gegn heimamönnum í Norður-Írlandi í öðrum vináttulandsleik á þriðjudagskvöld.
Þá var þetta fyrsti sigurleikur Arnars Gunnlaugssonar síðan hann tók við landsliðinu. Íslenski hópurinn er nú kominn til Belfast þar sem leikið verður gegn heimamönnum í Norður-Írlandi í öðrum vináttulandsleik á þriðjudagskvöld.
Arnar talaði um það í viðtali við Fótbolta.net eftir sigurinn gegn Skotum að íslenska liðið hefði sýnt þroskamerki frá síðasta glugga.
„Ég held að það sé langt síðan Ísland vann tvo leiki í sama glugga. Við kýlum á þetta gegn Norður-Írum," sagði Arnar en undirritaður ákvað að grúska og fann það út að síðast vann Ísland tvo leiki í sama glugga árið 2019 en þá eru janúarverkefni ekki tekin með. Í júní 2019, fyrir sex árum, vann Ísland öfluga sigra gegn Albaníu og Tyrklandi á Laugardalsvelli í undankeppni EM.
Okkar mál að rífa upp stemninguna með því að vinna leiki
„Ég vil að við förum vel gíraðir inn í haustið. Við finnum það líka heima fyrir að áhuginn á íslenska landsliðinu minnkar þegar illa gengur og það er ósköp eðlilegt. Okkar mál er að rífa upp stemninguna með því að vinna leiki og spila góðan fótbolta," segir Arnar.
Ísland býr sig undir undankeppni HM sem fer fram í byrjun september en strákarnir okkar eru með Frakklandi, Úkraínu og Aserbaídsjan í riðli. Sigurliðið fer beint á HM en liðið í öðru sæti í umspil og Arnar segir mikilvægt að íslenska liðið fái öflugan stuðning í þessu verkefni.
„Við verðum að vera klárir í haust. Við þurfum á alvöru gryfju að halda þegar við mætum Aserbaídsjan. Svo bíður okkar ærið verkefni þegar við förum til Frakklands. Stuðningur skiptir öllu máli svo vonandi höfum við glatt landann í kvöld og höldum svo áfram á þriðjudaginn."
Athugasemdir