Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 08. júlí 2020 10:30
Magnús Már Einarsson
Lallana líklega búinn að spila sinn síðasta leik með Liverpool
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að Adam Lallana sé líklega búinn að spila sinn síðasta leik með liðinu.

Hinn 32 árs gamli Lallana verður samningslaus eftir tímabilið og hyggst róa á önnur mið. Hann vill ekki spila síðustu leiki Liverpool til að meiðast ekki og missa af samningi hjá öðru félagi.

„Það er klárt að Adam mun yfirgefa félagið í sumar. Núna er staðan erfið en ég virði Adam mikið," sagði Klopp.

„Hann vill ekki taka neina áhættu út af framtíðinni. Það er algjörlega á hreinu."

„Hann er einn af mikilvægustu leikmönnunum á tíma mínum hjá félaginu og ég óska honum alls hins besta í framtíðinni. Frá mínu sjónarhorni er hann nú þegar goðsögn hérna. Hann getur orðið goðsögn annars staðar á næsta tímabili."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner