Fotbolti.net
08.07.23 - 17:37
Halldór Gauti Tryggvason

Björgvin Karl: Virða stigið

Auglýsing
Björgvin Karl, Þjálfari FHL

Björgvin Karl, Þjálfari FHL

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Virða stigið, ágætlega sáttur með baráttunna og vilja en frammistaða sóknarhelming og gæði í sendingum og móttökum hefði mátt vera betri hjá okkur í dag.” Þetta sagði Björgvin Karl, þjálfari FHL, þegar hann er spurður um fyrstu viðbrögð eftir leik.

„Við hefðum viljað tengja meira við senterinn okkar og þaðan niður á miðjumennina og fá eitthvað út úr því en það var ekki að gerast í dag.”

Björgvin var einnig spurður út í stemminguna í hópnum. „Stemningin er ágæt, það vantar ekki, það er meira að okkur vantar bara leikmenn, og við höfum verið í miklum meiðslum og smá shoutout á stjórnina, ég væri alveg til í að fá leikmenn í glugganum.”

En hvernig leggst næsti leikur í þjálfara FHL?„ Hann er heima og okkur finnst alltaf gaman að spila heima og hann leggst bara mjög vel í okkur.”

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.