Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. ágúst 2020 07:00
Aksentije Milisic
Barcelona sagt ætla bjóða 14 milljónir punda í Eric Garcia
Mynd: Getty Images
Eric Garcia, leikmaður Manchester City, hefur hafnað því að skrifa undir nýjan samning við liðið og hefur Barcelona áhuga á að fá leikmanninn í sínar raðir.

Garcia kom til City frá Barcelona árið 2017 og nú vill Barcelona fá hann til baka. Liðið er sagt ætla bjóða 14 milljónir punda í þennan 19 ára gamla leikmann en hann á eitt ár eftir af samningi sínum hjá City.

BBC greinir frá því að City vilji fá 30 milljónir punda fyrir leikmanninn en Barcelona ætlar bíða eftir að leikur liðsins gegn Napoli í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar klárist og gera svo tilboð.

Garcia fór frá La Masia, akademíu Barcelona, árið 2017 og hefur síðan þá tekist að brjóta sér leið inn í lið City. Barcelona sér nú leikmaninn sem arftaka Gerard Pique.
Athugasemdir
banner
banner