Fotbolti.net
08.08.21 - 21:51
Sverrir Örn Einarsson

Helgi Valur: Hefðum átt að skora eitt eða tvö í viðbót í fyrri hálfleik

Auglýsing
Helgi Valur Daníelsson

Helgi Valur Daníelsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Aðallega svekkelsi miðað við færin sem við fengum allavega. Við hefðum átt að skora eitt eða tvö í viðbót í fyrri hálfleik fannst mér
en svo auðvitað var þetta erfitt í seinni hálfleik. Þeir komust meira inn í leikinn og voru svolítið að stríða okkur og fengu þetta mark en í lokin var þetta bara galopið,“
sagði Helgi Valur Daníelsson miðjumaður Fylkis inntur eftir sínum fyrstu viðbrögðum eftir 1-1 jafntefli Fylkis gegn Keflavík suður með sjó fyrr í kvöld.
Fylkisliðið mætti af gríðarlegum krafti inn í leikinn og var leikurinn mjög hraður fyrstu 25-30 mínúturnar sem Keflvíkingar réðu illa við. Var það uppleggið að freista þess að keyra yfir þá strax í byrjun?

„Já við spiluðum við Leikni í síðustu viku og byrjuðum af krafti þar og áttum góðan leik og pressuðum hærra en við höfum verið að gera. Við ætluðum að gera það sama í dag og það hefur verið að hjálpa okkur að byrja frekar hátt uppi og af krafti og koma okkur þannig inn í leikinn þannig að það gekk vel í byrjun.“

Ragnar Sigurðsson lék sinn fyrsta leik fyrir Fylki í 15 ár í dag og lék fréttaritara forvitni á að vita hvernig aldursforseta liðsins litist á að fá Ragga í liðið?

„Hann er búinn að æfa tiltölulega stutt með okkur núna en frábært að hann skyldi fá þessar mínútur í dag og hann á eftir að styrkja okkur alveg gríðarlega. “
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.