08.08.26 - 12:50
Brynjar Ingi Erluson
Guimaraes fékk skilaboð frá Rice - „Ekki fleiri slagsmál“

Mynd: Arsenal

Mynd: Arsenal

Mynd: Arsenal
Bruno Guimaraes er í skýjunum með að vera genginn til liðs við Arsenal en nokkrir leikmenn félagsins sendu honum skilaboð í aðdraganda félagaskiptanna.

TENGT EFNI
Bruno Guimaraes til Arsenal (Staðfest)
Arsenal styrkti miðsvæðið verulega þegar félagið keypti Guimaraes frá Newcastle United fyrir 75 milljónir punda.
Englandsmeistararnir voru fyrir með gríðarlega öfluga miðju en koma Brasilíumannsins færir hana upp á enn hærra plan.
Guimaraes var kynntur til leiks í dag eftir að hafa skrifað undir fjögurra ára samning með möguleika á eins árs framlengingu. Í fyrsta viðtali sínu við félagið sagði hann Declan Rice strax hafa sett sig í samband.
„Rice sendi mér skilaboð og sagði: ‚Komdu hingað og í guðanna bænum, ekki fleiri slagsmál því nú erum við vinir.‘ Það gladdi mig að fá skilaboð frá honum.“
„Miðjan sem við erum með hér er ein sú besta í Evrópu. Þetta eru allt frábærir leikmenn og ég get ekki beðið eftir að spjalla við þá, kynnast þeim og spila með þeim,“ sagði Guimaraes.
Hann verður fjórði Brasilíumaðurinn í leikmannahópi Arsenal en þar eru fyrir Gabriel, Gabriel Martinelli og Gabriel Jesus. Gabriel (varnarmaðurinn) var sérstaklega iðinn við að senda landa sínum skilaboð á meðan félagaskiptin voru í vinnslu.
„Stóri Gabi er mjög spenntur. Hann sendi mér reglulega skilaboð og sagði: ‚Við bíðum eftir þér. Hvenær kemurðu?‘
„Ég hlakka mikið til að hitta alla. Það eru ekki bara Brassarnir heldur er allur hópurinn frábær. Ég ætla að gefa allt mitt í þetta,“ sagði Guimaraes.
Miðjumaðurinn sagðist hafa verið kominn á krossgötur á ferlinum og fundið að rétti tíminn væri kominn til að færa sig um set.
„Eftir að hafa spilað á tveimur heimsmeistaramótum var ég kominn á þann stað á ferlinum að ég þurfti áskorun sem þessa. Ég vil vinna titla og skrifa söguna. Nú tel ég mig vera á réttum stað til þess,“ sagði hann.
Guimaraes var einnig beðinn um að lýsa sjálfum sér sem leikmanni og sagði stuðningsmenn Arsenal fljótt munu sjá að þar fer mikill baráttuhundur.
„Ég get sent boltann vel, hleyp mikið og spila eins og stríðsmaður. Ég gefst aldrei upp og reyni alltaf að hjálpa liðinu.“
„Ég er góður á boltanum, yfirvegaður og get líka skorað mörk við og við. Vonandi tekst mér að gleðja alla hér,“ sagði Guimaraes að lokum.