Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 08. september 2019 20:10
Brynjar Ingi Erluson
Inkasso-kvenna: Tindastóll þjarmar að FH
Laufey Harpa Halldórsdóttir skoraði fyrir Tindastól
Laufey Harpa Halldórsdóttir skoraði fyrir Tindastól
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tindastóll 2 - 1 Afturelding
1-0 Laufey Harpa Halldórsdóttir ('2 )
2-0 Markaskorara vantar ('12, víti )
2-1 Markaskorara vantar ('37 )

Tindastóll á enn möguleika á að komast upp í Pepsi Max-deild kvenna eftir 2-1 sigur á Aftureldingu í 16. umferð í dag.

Laufey Harpa Halldórsdóttir kom Tindastól yfir áður en liðið bætti við öðru marki úr víti tíu mínútum síðar. Afturelding minnkaði muninn á 37. mínútu en lengra komst liðið ekki.

Lokatölur 2-1 og Tindastóll í 3. sæti með 31 stig, fjórum stigum á eftir FH sem er í 2. sæti.

FH á eftir að spila við Aftureldingu og Augnablik á meðan Tindastóll mætir botnliði ÍR og svo ÍA sem er í 7. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner