Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 08. október 2019 09:30
Magnús Már Einarsson
Pogba til Dubai í stað Íslands - Vonast til að ná Liverpool leiknum
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, ætlar að dvelja í Dubai í vikunni þar sem hann verður í sérstökum æfingum hjá einkaþjálfara.

Pogba hefur verið að glíma við meiðsli á fæti en hann hefur misst af síðustu tveimur leikjum Manchester United og verður ekki með franska landsliðinu gegn Íslandi á föstudag.

Í stað þess að koma í kuldann til Íslands þá er Pogba í hitanum í Dubai í þessari viku.

Samkvæmt frétt Sky Sports er Pogba bjartsýnn á að snúa aftur á völlinn um aðra helgi þegar Manchester United fær Liverpool í heimsókn.

Pogba setti færslu á Instagram þar sem hann sýndi æfingaaðstöðuna í Dubai.


Athugasemdir
banner
banner
banner