Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. október 2020 12:00
Magnús Már Einarsson
Harry Wilson ekki í Meistaradeilarhóp Liverpool
Mynd: Getty Images
Félög í Evrópu skila í dag 25 manna leikmannalistum sínum fyrir riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Ekkert pláss er fyrir Harry Wilson í hópnum hjá Liverpool.

Wilson var á láni hjá Bournemouth á síðasta tímabili þar sem hann skoraði sjö mörk í ensku úrvalsdeildinni.

Burnley sýndi Wilson áhuga á dögunum en var ekki tilbúið að greiða uppsett verð.

Wilson er ekki í myndinni hjá Jurgen Klopp fyrir komandi tímabil en fréttir frá Englandi segja að hann gæti farið á láni í Championship deildina áður en glugginn lokar þar í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner