Fotbolti.net
08.10.23 - 18:01
Kári Snorrason

Emil Atla: Boltinn sem Jölli spilar er ekkert eðlilega skemmtilegur

Auglýsing
Emil Atla: Boltinn sem Jölli spilar er ekkert eðlilega skemmtilegur
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Síðasti leikur tímabilsins í Bestu deild karla fór fram á Kópavogsvelli í dag þegar Breiðablik og Stjarnan mættust. Stjarnan vann sannfærandi 2-0 sigur á Blikum og þar með tryggðu sér 3. sæti deildarinnar. Emil Atlason markahæsti maður mótsins mætti í viðtal eftir leik.
„Frábær sigur, við vorum mjög góðir í dag og áttum sigurinn skilið. Ég fékk alveg færi, en gaman að sjá Eggert klára þetta."

Emil er markahæsti leikmaður Bestu-deildarinnar

„Tilfinningin er góð, mjög gaman að vera markahæstur. Markmiðið fyrir tímabil var að koma vel inn í þetta og ég gerði það. Gaman að enda sem markahæstur.
Ég fann sjálfstraustið síðasta sumar, í sumar þá vissi ég hvað ég get."


Emil er ánægður með Jökul

„Boltinn sem Jölli spilar er ekkert eðlilega skemmtilegur. Hann nálgast okkur leikmennina rosalega vel. Lætur okkur hugsa, gengur ekkert eðlilega vel."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.