08.10.26 - 23:03
Brynjar Ingi Erluson
Stjóri Sunderland: Keppnin missir gildi sitt ef deildin tekur ekki hart á þessu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Regis Le Bris, stjóri Sunderland, segir ensku úrvalsdeildina verða að taka hart á máli Manchester City enda sé gildi keppninnar í húfi.

TENGT EFNI
Lampard um Man City: Ég hef mín eigin vandamál
Margir stjórar sátu fyrir svörum í dag fyrir leiki helgarinnar og voru flestir spurðir út í niðurstöðuna í máli Manchester City vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar á árunum 2009 til 2018.
Le Bris fékk ekki spurningu um málið á sínum fréttamannafundi en sagði í viðtali við Times að deildin yrði að standa fast á sínu.
„Yfirvöld verða að taka hart á þessu, annars missir keppnin gildi sitt. Mín afstaða er einföld: Það gilda reglur bæði innan vallar og utan,“ sagði Le Bris.
Man City hefur áfrýjað úrskurðinum en ekki liggur fyrir hvenær áfrýjunin verður tekin fyrir. Samkvæmt ensku úrvalsdeildinni hefur félagið tólf vikur frá áfrýjun til að flytja mál sitt. Nefndin hefur síðan 30 daga til að komast að niðurstöðu og má því búast við úrskurði í janúar eða febrúar.
Að því loknu verður tekin ákvörðun um refsingu City, en félagið getur einnig áfrýjað henni.