Fotbolti.net
08.10.26 - 23:57
Brynjar Ingi Erluson

Þjálfari Benín vonsvikinn með Argentínumenn

Þjálfari Benín vonsvikinn með Argentínumenn
Canon

Mynd: EPA

Gernot Rohr, landsliðsþjálfari Benín, var afar ósáttur við þær móttökur sem hann og leikmenn hans fengu eftir landsleikinn gegn Argentínu á dögunum.
Messi kvaddi með stæl
TENGT EFNI

Messi kvaddi með stæl

Argentína tók á móti Benín í vináttulandsleik á Monumental-leikvanginum í Buenos Aires þar sem Lionel Messi kvaddi landsliðið.

Eftir leikinn vildu leikmenn og þjálfarar Benín kveðja Messi og skiptast á treyjum við Argentínumenn en fengu ekki færi á því. Myndband hefur einnig farið í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem Messi gengur í burtu þegar þeir óska eftir mynd með honum.

Rohr lýsti vonbrigðum sínum í samtali við RMC Sport.

„Argentínumenn gáfu leikmönnum okkar ekkert, ekki einu sinni mynd með Messi.“

„Við vildum skiptast á treyjum en fengum enga. Þeir leyfðu okkur ekki einu sinni að koma inn í klefa leikmannanna. Öryggisverðirnir vísuðu öllum í burtu.“

„Leikmennirnir mættu með treyjurnar sínar í von um að fá að skipta við Argentínumenn. Þeir reyndu allt en ekkert gekk,“
sagði Rohr.

Sjálfur sagðist hann hafa þurft að bíða í hálftíma eftir að fá að hitta Lionel Scaloni, þjálfara Argentínu.

Athletic óskaði eftir viðbrögðum frá argentínska fótboltasambandinu en hefur ekki fengið svar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.