07.10.26 - 01:28
Brynjar Ingi Erluson
Messi kvaddi með stæl

Takk fyrir allt, Messi!

Mynd: EPA

Þetta var kvöldið hans Messi

Mynd: EPA

Messi ásamt börnum sínum og liðsfélögum

Mynd: EPA

Takk fyrir allt, Messi!

Mynd: EPA
Lionel Messi, einn besti fótboltamaður í sögu Argentínu ef ekki sá besti, kvaddi landsliðið með 3-0 sigri á Benín á Monumental-leikvanginum í Buenos Aires í nótt.
Það hafði lengi legið fyrir að Messi væri að fara að leika sinn síðasta landsleik. Hann var valinn í hópinn fyrir þetta verkefni en ákveðið að kveðjustundin yrði gegn Benín.
Argentínska fótboltasambandið hafði samband við fyrrverandi liðsfélaga hans og bauð þeim á leikinn. Ekki fengu allir leyfi til að mæta en athöfnin var engu að síður stórkostleg þegar þjóðin kvaddi lifandi goðsögn. Messi átti erfitt með að halda aftur af tárunum og það sama mátti segja um marga liðsfélaga hans.
Svo tók alvaran við og Messi kvaddi á þann hátt sem honum einum er lagið. Hann var að sjálfsögðu í byrjunarliðinu, lagði upp fyrstu tvö mörkin og skoraði það þriðja.
Nicolas Otamendi kom Argentínu yfir á 48. mínútu þegar hann þrumaði boltanum í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu Messi. Nico Paz bætti síðan við öðru marki með fallegu skoti fyrir utan teig, aftur eftir sendingu frá fyrirliðanum.
Þegar tuttugu mínútur voru eftir fengu Argentínumenn vítaspyrnu eftir að leikmaður Benín sparkaði Agustin Giay niður. Messi fór á punktinn og markvörður Benín benti honum á hægra hornið. Þangað skaut Messi en markvörðurinn kastaði sér í hitt hornið.
Mark og tvær stoðsendingar í kveðjuleiknum. Það kallast að kveðja með stæl.
Landsliðsferlinum lýkur með 208 leikjum, 126 mörkum og 70 stoðsendingum. Við bætast heimsmeistaratitill, þrír úrslitaleikir á HM, tveir Copa America-titlar og sigur í Finalissima. Stórglæsilegur ferill hjá einum besta leikmanni sögunnar.
Argentínska þjóðin mun sakna Messi. Það gæti tekið ár, áratugi eða heila öld að finna arftaka hans og jafnvel þá verður erfitt að fylla skarðið sem hann skilur eftir sig.

GOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOAL MESSSSSSSSSSSSSI ????????????????????
— Messi World (@M10GOAT) October 7, 2026
??? ???????? ?????? @LOJASTOREGT https://t.co/AONIp78FA8
THE GAME HAS BEEN PAUSED IN THE 10TH MINUTE FOR A STANDING OVATION FOR LEO MESSI! ?????????? https://t.co/uB6NJpHt6b
— All About Argentina ???????????? (@AlbicelesteTalk) October 6, 2026

Þetta var kvöldið hans Messi

Mynd: EPA

Messi ásamt börnum sínum og liðsfélögum

Mynd: EPA