Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 08. nóvember 2019 19:23
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Norwich og Watford: Chalobah og Gray bekkjaðir
Tekst Pukki að rífa sig úr lægðinni í kvöld?
Tekst Pukki að rífa sig úr lægðinni í kvöld?
Mynd: Getty Images
Norwich tekur á móti Watford í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Liðin mætast í botnslag þar sem nýliðar Norwich eru aðeins með sjö stig eftir ellefu fyrstu umferðirnar. Watford er með fimm stig.

Norwich teflir fram sama liði og tapaði 2-0 fyrir Brighton um síðustu helgi á meðan Quique Flores gerir þrjár breytingar á liðinu sem tapaði gegn Chelsea.

Nathaniel Chalobah, Andre Gray og Adam Masina detta úr byrjunarliðinu. Jose Holebas, Etienne Capoue og Will Hughes koma inn í staðinn.

Norwich: Krul, Aarons, Tettey, Godfrey, Lewis, Trybull, McLean, Buendia, Stiepermann, Hernandez, Pukki
Varamenn: Fahrmann, Byram, Vrancic, Cantwell, Drmic, Amadou, Srbeny

Watford: Foster, Janmaat, Kabasele, Dawson, Cathcart, Holebas, Hughes, Capoue, Doucoure, Deulofeu, Pereyra
Varamenn: Gomes, Mariappa, Masina, Chalobah, Femenia, Deeney, Gray
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner