Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 08. desember 2022 21:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Scaloni: Ertu að reyna að hjálpa Hollendingum?
De Paul, Lionel Messi og Di Maria
De Paul, Lionel Messi og Di Maria
Mynd: EPA

Rodrigo de Paul miðjumaður argentíska landsliðsins er tæpur fyrir leik liðsins gegn Hollandi á morgun í 8 liða úrslitum á HM.


Lionel Scaloni þjálfari Argentínu var spurður út í meiðslin og það fór ekki vel í hann.

„Æfingin okkar var fyrir luktum dyrum, því ertu að spurja mig um De Paul? Ertu að reyna að hjálpa Hollendingum? Það er ekki gott fyrir okkur þegar upplýsingar leika til fjölmiðla, það er mjög skrítið," sagði Scaloni.

Þá spilaði Angel Di Maria ekkert gegn Ástralíu í 16-liða úrslitum vegna meiðsla.

„Við eigum eina æfingu eftir og við sjáum hvort De Paul og Di Maria geta spilað eða ekki. Uppleggið fer líka svolítið eftir því í hvernig standi vængmennirnir eru, það er mikilvægt að þeir sem spila eru í 100% formi," Scaloni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner