Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 09. janúar 2023 20:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leao slær á sögusagnir - „Falsfréttir"
Mynd: EPA

Rafael Leao er einn mest spennandi leikmaður Evrópu í dag en hann hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína hjá AC Milan. Einnig stóð hann sig vel á HM í Katar með portúgalska landsliðinu.


Talið er að Manchester United og Chelsea hafi sýnt honum áhuga.

Samningur hans við Milan rennur út sumarið 2024 og er liðið að reyna allt til að framlengja samninginn.

Sögusagnir voru um að hann vildi fá 8.8 milljónir punda (10 milljónir evra) í árs laun en hann deildi skjáskoti af því á Instagram og skrifaði „Falsfréttir eins og alltaf."


Athugasemdir
banner
banner
banner