Fotbolti.net
13.09.26 - 17:18
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Lárus Orri: Það var vitað að það yrði erfitt að ‘motivera’ sig fyrir þennan leik

Auglýsing
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var það sem við höfðum áhyggjur af og vissum að yrði erfitt,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, eftir 5-1 tap gegn KR á Meistaravöllum í dag. 

Lestu um leikinn: KR 5 - 1 ÍA

„Við tryggjum okkur í efri hlutann í síðasta leik, eigum mjög góðan leik heima. Það var vitað að það yrði erfitt að ‘motivera’ sig fyrir þennan leik. Að sama skapi þá vissum við að KR-ingarnir myndu mæta grimmir, þeir koma alltaf grimmir fyrstu 15 og við vissum að þeir yrðu extra grimmir núna og þeir tóku okkur á okkar bragði eins og við tókum þá uppá Skaga fyrir viku síðan. Eftir 20 mínútur þegar staðan er orðin 3-0 þá er þetta bara orðinn skrýtinn leikur, ég verð nú samt að gefa mínum leikmönnum það að þeir stóðu sig vel þegar við lendum 3-0 undir,“ hélt hann svo áfram.

Aðspurður hver helsti munurinn á þessum leik og leiknum sem þeir spiluðu gegn KR um síðustu helgi er segir hann:

„Þetta hefur ekkert að gera með gras eða gervigras eða möl, það skiptir engu máli það er bara að þeir voru með auka forskot í dag sem við höfðum í síðasta leik. Hefðum við mætt svona til leiks og þeir svona á grasinu upp á Skaga þá hefðu þeir unnið þann leik og ef einhver ætlar að segja þér eitthvað annað, að þetta hafi að gera með gras eða gervigras þá hefur þú bara ekki vit á hlutunum.“

Lárus talar um að það hafi verið erfitt að ‘motivera’ liðið fyrir þennan leik, hefur hann áhyggjur að það verði raunin í þeim leikjum sem eru eftir?

„Nei það verður ekkert basl en menn verða að hafa rétta hugarfarið í þessa leiki, það getur verið erfitt að ‘motivera’ sig. Ef þú ætlar að spila fótboltaleiki bara í 99 prósent þá verður þetta mjög erfitt. Við eigum fjóra leiki eftir, það er alveg einn og hálfur mánuður eftir af þessu móti þannig að þetta var ágætis áminning fyrir okkur. Við verðum að mæta klárir á móti Blikunum uppá Skaga í næsta leik annars náum við ekki í stigin þar, það er alveg á hreinu.“

Viðtalið við Lárus Orra má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.