Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mán 09. janúar 2023 19:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid kveður Bale: Sönn goðsögn
Mynd: Getty Images

Gareth Bale tilkynnti í dag að hann hafi lagt skóna á hilluna.


Hann er 33 ára gamall en hann ólst upp hjá Southampton en lék einnig með Tottenham, Real Madrid og endaði ferilinn í MLS með LAFC.

Hann gekk til liðs við Real Madrid frá Tottenham árið 2013 og vann spænsku deildina þrisvar og Meistaradeildina fimm sinnum.

Síðustu árin hjá Real voru erfið og tækifærin af skornum skammti, hann fór á lán til Tottenham áður en hann yfirgaf Evrópuboltann og hélt til Bandaríkjanna.

Real Madrid sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld eftir tilkynninguna.

„Real Madrid C. F. vill koma á framfæri þakklæti sínu, aðdáun og væntumþykju fyrir sannri goðsögn félagsins og í fótboltaheiminum. Nafnið hans verður ávalt tengt við sögu félagsins. Gangi þér vel Gareth og við óskum þér og fjölskyldu þinni alls hins besta, " segir í yfirlýsingunni.


Athugasemdir
banner
banner