Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 09. febrúar 2021 22:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið sem fleytti Man Utd í 8-liða úrslitin
Hetja Man Utd í kvöld.
Hetja Man Utd í kvöld.
Mynd: Getty Images
Manchester United verður í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit enska bikarsins á fimmtudaginn.

Man Utd hafði betur gegn West Ham í frekar leiðinlegum fótboltaleik á þessu þriðjudagskvöldi.

Það var Scott McTominay sem skoraði markið á sjöundu mínútu framlengingurinnar eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 73. mínútu.

McTominay hefur bætt leik sinn mikið og er farinn að skora meira en hann gerði áður. Hann er búinn að skora sjö mörk í síðustu 30 leikjum sínum, en það er jafnmikið og hann gerði í 84 leikjum þar á undan.

Hér fyrir neðan má sjá markið sem fleytti Man Utd áfram í 8-liða úrslit bikarsins.


Athugasemdir
banner
banner