Galatasaray í Tyrklandi hefur boðið bakverðinum Patrick van Aanholt þriggja ára samning.
Það er Sky Sports sem greinir frá þessu í kvöld og tekið er fram að umboðsmaður leikmannsins sé í viðræðum við félagið.
Van Aanholt verður samningslaus hjá Crystal Palace í sumar og má ræða við erlend félög um félagaskipti.
Van Aanholt hefur lengi verið mikilvægur hlekkur í liði Palace og fylgjast nokkur úrvalsdeildarfélög með gangi mála.
Hollendingurinn hefur skorað 14 mörk í yfir 100 leikjum fyrir Palace eftir að hafa komið frá Sunderland árið 2017.
Athugasemdir