Berglind Björg: Gríðarlega ánægð með þessa ákvörðun
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Berglind Björg Þorvaldsdóttir var meðal markaskorara í 5-0 sigrinum gegn Hvíta-Rússlandi í vikunni en nú er öll einbeiting liðsins á mikilvægan leik gegn Tékklandi sem fram fer í Teplice á þriðjudag.
„Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur og við erum gríðarlega spenntar að fara að spila þennan leik. Það var gott að vinna Hvíta-Rússland og við áttum góðan leik þar," segir Berglind.
„Ég held að við munum ekki hafa jafn mikinn tíma á boltanum í þessum leik á þriðjudaginn. Tékkar eru góðir í fótbolta og þetta verður erfiður leikur sem við þurfum að mæta vel stemmdar í."
Berglind gekk í raðir Brann í Noregi í upphafi árs og er ánægð með þá ákvörðun.
„Ég er gríðarlega ánægð með að hafa farið til Brann. Mér lýst mjög vel á þetta, deildin er sterk og liðið er gott. Það er mikil samkeppni og það er bara hollt og ýtir manni lengra."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.