Keflavík tekur á móti Stjörnunni á HS-Orkuvellinum í Keflavík í kvöld.
Keflavíkingar hófu mótið á 1-0 tapi gegn Víkingum í Fossvogi á meðan að Stjarnan gerði markalaust jafntefli við Leikni í Garðabæ. Talsvert hefur gustað um Garðbæinga í vikunni en Rúnar Páll Sigmundsson sagði upp störfum sem þjálfari í vikunni og Þorvaldyr Örlygsson tók við og stýrir liðinu einn í fyrsta sinn í kvöld.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá HS-Orkuvellinum

Keflvíkingar gera eina breytingu á liði sínu frá tapinu gegn Víkingum. Adam Árni Róbertsson sest á bekkinn og inn kemur Ísak Óli Ólafsson.
Stjarnan gerir svo tvær breytingar. Einar Karl Ingvarsson tekur út leikbann eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Leikni þá er Magnus Anbo Clausen ekki í hóp en í stað þeirra koma þeir Elís Rafn Björnsson og Þorsteinn Már Ragnarsson. Umtalaðasti leikmaður Stjörnunar þessa daganna Sölvi Snær Guðbjargarson vermir svo varamannabekkinn.
Byrjunarlið Keflavíkur
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
2. Ísak Óli Ólafsson
4. Nacho Heras
7. Davíð Snær Jóhannsson
8. Ari Steinn Guðmundsson
10. Kian Williams
16. Sindri Þór Guðmundsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Joey Gibbs
24. Rúnar Þór Sigurgeirsson
25. Frans Elvarsson (f)
Byrjunarlið Stjörnunar
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
9. Daníel Laxdal (f)
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
20. Eyjólfur Héðinsson
21. Elís Rafn Björnsson
22. Emil Atlason
32. Tristan Freyr Ingólfsson
77. Kristófer Konráðsson
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá HS-Orkuvellinum
Athugasemdir